Janúar
...jæja allir gestir farnir, búið að sópa saman glimmerinu eftir áramótin, kaupa nikótínplástur og kort í ræktina, lofa guði og mönnum að hætta að drekka áfengi og borða meira grænmeti..... allt á réttri janúarleið hjá mér.
Ég er b-manneskja og þegar ég er í "fríi" (læra undir próf fríi) þá fer ég ekki að sofa fyrr en um miðja nótt og vakna um hádegi. Fór einmitt að sofa um hálf fjögur í nótt.
Snemma í morgun vaknaði ég svo við borvélahljóð og mundi að það er verið að laga eitthvað drasl frammi í sameign og gaurarnir með lætin þurfa að banka á allar íbúðir og bora eitthvað inní gangi hjá öllum... ef enginn svarar hleypa þeir sér inn með masterlykli...
...og þá vil ég ekki vera sofandi...svo ég er búin að sitja hérna í nokkra tíma og bíða eftir að loksins komi að minni íbúð svo ég geti farið í sturtu og komið mér út og svona en nei gaurarnir eru alltaf að taka sér pásu og það gengur ekkert hjá þeim,ég verð líklega sitjandi hér í allan dag að bíða.... ótrúlega spes hvað það bara rennur varla blóðið í öllu vinnuafli hérna í Danmörku.
Á meðan ég bíð eftir að Jesper og Kasper komi sér þessa loka 10 metra að minni íbúð þá ætla ég að reyna að lesa eitthvað fyrir þetta próf mitt í næstu viku og bóka flug og hótel fyrir okkur Svanhildi um páskana.
Veit einhver hvort er skemmtilegra að fara til Berlín eða Amsterdam?