Skór og munnmök
Í gær átti ég loksins nóg í reykleysis sjóðnum mínum fyrir stígvélunum sem ég er búin að heimsækja í hvert skipti sem ég labba framhjá skóbúð.. jibbí!Ég held ég hafi kannski klikkað pínulítið, sumir hafa verið kvartað svoldið við mig um að ég kaupi alltaf skó sem heyrist skvísuhljóð í, þannig að hægt er að heyra í mér í margra metra fjarlægð........ég held það séu líka skvísuhljóð í þessum en mér finnst þau ógisslega fín og fólk verður bara að þola það... þau fara í prufukeyrslu á morgun :)
Við fengum nýjan kennara í skólanum í morgun sem var að byrja að kenna okkur php, ógisslega fínn kall og fyndinn.
Hann á og systir mín eiga quote dagsins í dag.
Kennarinn: "Well its a matter of taste, much like oral sex"
(þegar nemandi spurði hann hvort væri betra að nota eina aðferð eða aðra)
Lilja systir: "Jasmín, komdu með buxurnar þínar ég ætla að henda í bleika vél"
Að lokum þá á öldruð móðir mín afmæli í dag... hrópum þrefalt húrra fyrir henni !!!