]]>

« Home | Vei vei... ég fékk skemmtilegt símtal í dag!Kalli... » | Elín to the rescue » | Læri læri tækifæri.... » | If your gonna spew, spew in to this! » | Helgin... » | HALLÓ HEIMUR! » | I frettum er thetta helst... » | FOKKIT » | Sá mann í lestinni í morgun, hann var í bol sem s... » | Panic »

Wednesday, October 25, 2006

Kalli visits vol.1

Ég fór í skólann í gær og hóparnir allir í bekknum voru með presentation á leikjapersónum sem við áttum að búa til fyrir aldurshópinn 8 - 10 ára... það var líka samkeppni um bestu persónuna og hópurinn sem ég er í var í öðru sæti!!!

Það munaði bara einu stigi á okkur og vinningstillögunni, þetta var rosalega gaman, allir hóparnig kynntu og svo var stigagjöf í júróvisjón stíl... við vorum rosa ánægð með okkar og ánægð með að tillagan sem við kusum var valin og að tillagan okkar hafi fengið svona góða dóma.
Edda segir reyndar betur frá þessu hér ef einhverjum langar að lesa....

Eftir skóla kíkti ég svo niðrí bæ með krökkunum og rakst á engann annann en Kalla á strikinu... eftir það fórum við Kalli að kíkja á nokkra öl, "tónleika" á Hovebane, með skelfilegri hljómsveit, og að borða á Mama Rosa....
.. hittum fullt af góðu fólki á bar í gærkvöldi og skemmtum okkur alveg konunglega í rigningunni....Kalli eignaðist meira segja sína fyrstu regnhlíf og hann er orðinn pró í að pakka henni saman :)

En nú ætlum við að fara að kíkja á einhver söfn og dýragarðinn, eitthvað út að borða og svo vonandi tónleika með Pipettes í kvöld....
.....till next time.


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|