MTV & Tuborg festival

Jiminn eini það er búið að vera svoooo gaman hjá mér síðustu daga að það er bara alveg ótrúlegt...
Ég fór með Heiðu minni á MTV hátíðina á radhuspladsen á fimmtudag og við skemmtum okkur alveg frábærlega, ekkert smá fínt að ná að kíkja á Snoop, Killers, Keane, Outlandish, Pharrell Williams og fleiri algjörlega fríkeypis.
Sumir voru svo spenntir að sjá stjörnurnar að fólk var farið að klifra í trjám, ekkert smá fyndið að sjá fólk bara missa sig...
Í gær fór ég með nokkrum stelpum í bekknum í Halloween partý/Tuborg festival í skólanum... geggjað stuð og ég dansaði alveg af mér rassinn... ég er með huge marbletti eftir kvöldið sem segir manni að þetta var alveg eðaldjamm :)
Í kvöld ætla ég svo að passa pjakkana mína á meðan að Lilja & Kiddi kíkja á lífið, ég held að Jasmín sé með rosaleg plön fyrir kvöldið svo það er eins gott að standa sig vel og vera með skemmtiatriði og prógramm....
...úff ég held ég þurfi að leggja mig svo ég verði með smá orku í kvöld :)