]]>

« Home | Oh ég er eitthvað svo þreytt á að sitja hérna inní... » | Naflakusk » | ÓVEÐUR » | Heimavinna dagsins » | Fastelavn » | Músík&Myndbönd » | Im your dramaqueen tonight... » | Skór og munnmök » | Nördablogg » | Lykt dagsins... »

Thursday, March 01, 2007

Nú verða sagðar fréttir

Mikið er skrítið hvað maður fær annað sjónarhorn á Ísland með því að færa sig aðeins frá því.

Sérstaklega hef ég tekið eftir því hvað fréttir eru oft vitlaust þýddar og farið er bara með rangt mál og skrifað bull, ég er allavega hætt að kíkja á íslensku netfréttamiðlana til að fá fréttir af einhverju sem viðkemur Danmörku því ég hef varla séð eina frétt sem inniheldur ekki nokkrar staðreyndarvillur.
Kannski er besta dæmið nýársávarp drottningarinnar, ég horfði nú á þetta ávarp sjálf en las svo á mbl að kjellingin hefði sagt allt annað en hún gerði....

Mér finnst ég þó hafa fengið betri fréttir af umheiminum þegar ég bjó á Íslandi, maður áttar sig ekki á því en maður er með fréttir í andlitinu allan daginn alla daga þarna á klakanum... hérna þarf maður aftur á móti að bera sig svoldið eftir fréttunum því umheimurinn getur auðveldlega farið framhjá manni.

Ég veit ekki hversu oft ég hef verið spurð að því að íslendingum í heimsókn hvort danir sem ég þekki séu ekki pirraðir að íslendingar hafi keypt Magasin....
....já já einmitt...

Jæja þýðir ekki að vera með þetta hangs ég á eftir að blanda molotov kokteila fyrir morgundaginn.... go'natter


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|