]]>

« Home | Workshop 2 - Gargol » | Blogger, clogger! » | MTV & Tuborg festival » | I aften.. » | Ég var að fá þessa mynd.... ég hef ekki séð hana ... » | Polly want a cracker? » | Kalli visits vol.3 » | Kalli visits vol.2 » | Kalli visits vol.1 » | Vei vei... ég fékk skemmtilegt símtal í dag!Kalli... »

Sunday, November 12, 2006

Enga afbrotamenn takk...

Eftir að ég kom heim eftir frábært kvöld hjá fjölskyldunni á Wagnersvej í gærkvöldi þá lagðist ég uppí rúm kveikti á imbanum og horfði á eina uppáhalds myndina mína Sliding Doors.

Þegar myndin var svona sirka hálfnuð, og klukkan rúmlega 2 þá heyri ég einhver óhljóð frammi á gangi og svo er bankað á hurðina hjá mér...
Ég pásaði myndina og hætti að anda, stóð við millihurðina og hugsaði með mér hvað í andskotanum ég væri að pæla að geyma rafmagnsflugnaspaðann minn frammi í gangi... ég gæti sko alveg komið einhverjum glæponinum í sjokk með honum.
Allavega, það leið og beið og ég hætti að heyra nokkuð þannig að ég fór fram í forstofu hjá mér og græjaði málið svo ég gæti haldið áfram að horfa á myndina...

Þetta var það sem ég taldi vera að græja málið í gærkvöldi!!!
Fatta ekki alveg hvernig þetta hefði stoppað einhvern með einbeittan brotavilja... ha ha ha...já sérstaklega fægiskóflan þarna ofaná, hún gæti sko alveg verið deadly!


E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...

|