Workshop 2 - Gargol

Sumir dagar eru bara æðislegir!
í dag voru allir í bekknum mínum með kynningu á leik sem við áttum að búa til fyrir 8-10 ára krakka, það var workshop númer 2 af 3 á þessari önn.
Fyrst var samkeppni um bestu leikjapersónuna eins og ég sagði ykkur frá fyrir stuttu síðan og þá vann leikjapersóna sem heitir Gargol og er lítill djöfull sem var hent út úr helvíti og lenti á himnum, hann þarf að finna leiðina aftur heim og á leiðinni lendir hann í ýmsum hremmingum og þarf að ganga í gegnum ýmsar raunir til að komast aftur heim til sín, og á leiðinni þarf hann að sjálfsögðu að útrýma öllu bleiku og fallegu.
Síðan að leikjapersónan var valin þá eru allir hóparnir í bekknum búnir að vinna við einn heim í á leiðinni til helvítis og áttu að búa til sögu um sinn heim og tölvuleik..minn hópur fékk verkefnið "ghost town".
Við erum 5 stelpur í hópnum mínum, Anne, Edda, Ég, Heiða og Jolene sem kunnum ekki rass á Flash fyrir þetta verkefni en í kynningunni í dag fengum við svo mikið hrós frá kennurum og nemendum um að hafa staðið okkur vel og okkar kynning og okkar leikur var talinn einn af þeim bestu sem kynntu í dag... við gætum ekki verið hamingjusamari, enda búnar að vinna að þessum leik langt fram á kvöld í marga daga í röð, bæði að búa til söguna, gera storyboard, skýrslu um allt ferlið, heimasíðu sem við kynntum á og að sjálfsögðu leikinn okkar.
Hérna getiði kíkt á afraksturinn og spilað leikinn okkar, hérna getiði svo kíkt á heimasíðuna og hluta af skýrslunni ef ykkur þyrstir í meira....
Í fyrramálið förum við svo á fund með kennurunum sem gefa okkur dóma fyrir verkefnið....og eins og hann Jens kennari sagði í dag þegar við bókuðum tíma
"til hvers þurfið þið að panta tíma í ráðgjöf hjá okkur :)"
Í næstu viku byrjum við svo í síðasta workshopið á þessari önn, og það er að hanna nýja heimasíður fyrir Greenpeace... ég hlakka bara til að vinna með þessum frábæra hóp sem ég er svo heppin að vera í.
En allavega vona að þið hafið gaman að leiknum :)